|
:: Saga
Verslunarsaga frá 1934
Verslunin Drangey á langa sögu verslunar með vefnaðarvöru, nótur og seðlaveski – og hafa þrír af fjórum eigendum hennar heitað María.
Verslunin Drangey byrjaði sem matvöruverslun á Grettisgötu árið 1934. Árið 1936 keypti María Samúelsdóttir Ammendrup verslunina af dánarbúi Páls Þorkelssonar og var verslunin í eigu fjölskyldunnar í 59 ár. Árið 1941 flutti verslunin í gerbreyttri mynd á Laugaveg 58 og aðallega verslað með vefnaðarvöru. Tage Ammendrup, sonur Maríu, varð hluthafi í versluninni og árið 1945 er bætt við leðurvörum, plötum og hljóðfærum. Í tengslum við búðina var plötuútgáfan Íslenskir tónar í húsinu og á lagernum var upphaflega upptökustúdíó. Plötur og nótur hurfu úr hillum um 1965 og var þá einkum verslað með töskur, seðlaveski og útsaum.
María Magnúsdóttir Ammendrup, tengdadóttir Maríu, tók við rekstrinum 1975 og voru leðurvörur þá í öndvegi. Árið 1995 kaupir María G. Maríusdóttir verslunina og er því þriðja Marían sem á Drangey. Vöruúrvalið er áfram töskur, hanskar, seðlaveski og fleira.
Þegar verslunarmiðstöðin Smáralind
er að rísa, er ákveðið að færa
út kvíarnar og innrétta þar verslunarrými.
Þann 20.október 2001, vígsludag Smáralindar,
opnaði Drangey þar aðra verslun með töskur,
seðlaveski, hanska og fleira. Árið 2003 er
ákveðið að breyta til og taka inn heimilis-
og gjafavörur meðfram töskum, hönskum og
seðlaveskjum. Í apríl sama ár er
báðum búðunum breytt í þá
veru við mikla ánægju viðskiptavina.
Sumarið 2004 verða þáttaskil í
sögu Drangeyjar þegar verslunin flytur sig alfarið
úr gamla bænum í Smáralindina.
Eigendum til mikillar ánægju, kom strax í
ljós að viðskiptavinir verslunarinnar héldu
tryggð við þá og létu flutninginn
ekki hafa áhrif á sig. Seinni part ársins
2006 var enn blásið í lúðra.
Heimilisgjafavaran vék úr hillum og ákveðið
að gefa nýjum hörðum og fisléttum
Titan ferðatöskum meira rými. Ekki má
gleyma dömuskarti frá hollenska fyrirtækinu
Manouk sem kom sá og sigraði hverja konu. Eftir
stendur að Drangey heldur áfram að verða
við óskum viðskiptavina sinna - nú sem
fyrr - og hafa það að leiðarljósi
að vera með eigin innflutning á verslunarvöru
til að halda verði niðri.
|